SAMafrit - örugg afritunartaka

Vefafritun í áskrift

Leiðbeiningar

Kerfiskröfur
  • Windows: Windows® Vista, Windows XP, Windows 2000, Windows 2008/2003/2003 SBS/2000 Server.
  • Mac: Mac OS X 10.x.
  • FreeBSD og Linux
Viðbótarkröfur:
  • Windows NT / 2000 / XP / 2003 – Vinsamlegast tryggðu að þú sért skráður inn í Windows með réttindi stjórnanda (administrator).
Uppsetning á forriti
  1. Í upphafi hleður þú niður forritinu sem þú færð sent eftir að sótt hefur verið um áskrfit.
  2. Í "Sam-afrit Identity" glugganum setur þú Sam-afrit ID og Sam-afrit Customer name  sem þú færð sent.
  3. Í "Sam-afrit Configuration" glugganum er þér gefinn valkostur á að setja þitt eigið notendanafn og lykilorð.  Ath að þessar upplýsingar eru notaðar til að komast inní stillingar forritsins.
  4. Öðrum valkostum í uppsetningu þarf ekki að breyta.
Uppsetning á afritunarþjónustu.
  1. Þegar uppsetningu á forritinu er lokið birtist ný táknmynd (SAMafrit) á valröndinni neðst á skjánum (nálægt klukkunni) Hægri smelltu á táknið og veldu "SAM-afrit Web Console".   Ath flýtileið hefur einnig verið útbúin undir Start hnappinum.
  2. Sláðu inn það notendanafn og lykilorð sem þú bjóst til í uppsetningu forrits. (Sam-afrit Configuration glugganum.  Default:  admin / admin)
  3. Við fyrstu innritun birtist Create a new Backup Schedule.  Þar stillir þú eftirfarandi þætti:
    1. Nafn afrits (hægt að búa til mörg afrit)
    2. Hvað á að afrita (hakar í möppur eða svæði sem á að afrita)
    3. Stilla hversu margar afritanir aftur í tímann skuli geymast.
    4. Valkostur á að dulkóða gögn með lykilorði.  (Ef þetta er notað þá er mjög mikilvægt að týna ekki lykilorði því það er nauðsynlegt til að hægt sé að nálgast gögnin aftur.)
    5. Velja afritunarafbrigði, hvenær og hversu oft á að taka afrit.  
      (Daglegt er algengast)
    6. Að lokum er smellt á "Save Backup"
  4. Til að hefja afritun strax er hægt að afar í Backup / List backup schedule og smellið á "Schedule Now"
Afritun
Fyrsta afritun getur tekið talsverðan tíma, allt eftir gagnamagni.  Í upphafi er tekið afrit af öllu umbeðnu – en eftir það er bara tekið afrit af því sem breytist á þeim tíma sem þú óskar.
Með lykilorði getur þú sótt gögnin aftur á tölvuna þína frá Samafrit hvar sem er í heiminum – svo fremi sem þú hafir góða Internet tengingu.
Kerfið mun láta þig vita um framvindu afritunar daglega í tölvupósti.

Endurheimting gagna
Til að enduheimta gögn er farið í Restore / List backup for Restore
Þar getur þú valið hvað þú ætlar að endurheimta og hvert þú vilt endurheimta það.
Step 1:  Hvaða afrit viltu endurheimta
Step 2:  Frá hvaða tíma viltu endurheimta skjal eða gögn.
Step 3:  Hvaða skrár skal endurheimta
Step 4:  Velja upphaflega staðsetningu eða nýja staðsetningu fyrir endurheimt efni.
Smellið á Restore og þá byrjar endurheimtun gagna.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn