SAMafrit - örugg afritunartaka

Vefafritun í áskrift

Vefafritun

Samafrit
Öruggt og þægilegt aðgengi að tölvugögnum er nauðsynlegt í daglegum rekstri fyrirtækja. Með Samafriti eru gögn afrituð sjálfvirkt og geymd á öruggan hátt utan fyrirtækisins. Auðvelt er að endurheimta þau hvar og hvenær sem er í gegnum vafra.

Helsti kostir
  • Algjörlega sjálfvirkt, tekur afrit af gögnum á þeim tíma sem óskað er
  • Hægt er að endurheimta gögnin hratt og örugglega þegar þarf
  • Sparar kostnað við afritunarstöðvar, segulbönd og hugbúnað sem annars er óumflyjanlegur
  • Sparar þann tíma sem fer í umsýslu með afritun, eins og að skipta um spólur eða diska

Umhverfið
Samafrit er aðgengileg í þægilegu vefumhverfi. Gögnin eru dulkóðuð og þjöppuð og send gegnum Internetið með hámarksöryggi í hýsingarumhverfi Samafrits.
Samafrit heldur utan um afritunarsögu og er hægt að endurheimta skrár og möppur frá því í gær, síðustu viku eða fyrir 60 dögum síðan, eða allt að eitt ár aftur í tímann þegar þörf er á.
Samafrit vinnur bæði á þinni tölvu og á miðlurum kerfisins. Ef ekki er tekið afrit einhverra hluta vegna mun
stjórnkerfi Samafrits senda tilkynningu þess efnis til viðeigandi aðila.

Virkni

Lausnin notar “Incremental forever” afritunarform. Þetta þýðir að fullt afrit er aðeins tekið einu sinni þ.e. í fyrsta skipti. Eftir það eru aðeins breytingar á gögnunum sendar yfir á gagnamiðstöðina og aldrei er þörf á að taka fullt afrit að nýju. Þessi afritunaraðferð auk útilokunar tvíafrita ásamt gagnaþjöppun tryggir minnsta mögulega tíma sem fer í afritatöku og sparar um leið bandvídd og örgjörvaálag. Auk þessa sparar þessi aðferð geymslupláss í gagnamiðstöð og kostnað við afritatöku.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn